Fjármál og ársreikningur
Hagnaður Landsbankans á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 17,0 milljarða króna á árinu 2022. Arðsemi eigin fjár var 11,6% á árinu 2023 eftir skatta, samanborið við 6,3% arðsemi árið áður.
Hagnaður (ma.kr.)
Arðsemi eigin fjár
Eiginfjárhlutfall
Fjármögnun
Fjármögnun Landsbankans grundvallast á þremur meginstoðum: innlánum frá viðskiptavinum, fjármögnun á markaði og eigin fé. Lánshæfiseinkunn Landsbankans er metin BBB/A-2 með jákvæðum horfum af S&P Global Ratings.
Áhættustjórnun
Áhætta er samofin allri starfsemi Landsbankans og öflug og traust áhættustjórnun er því lykilþáttur í rekstri bankans. Áhættustjórnun felur í sér greiningu, mat, upplýsingagjöf og stýringu á öllum áhættuþáttum.
Fylgiskjöl árs- og sjálfbærniskýrslu
Hér má nálgast öll helstu fylgiskjöl árs- og sjálfbærniskýrslunnar svo sem ársreikning, fjárhagsbók, stjórnarháttayfirlýsingu, áhættuskýrslu, tilvísunartöflu sjálfbærniskýrslu og viðauka hennar.
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.